Tækifæri til að efla enn starfsemi stofnana
Evrópusambandsins
Skýrsla Endurskoðunarréttar ESB nýkomin út
29.10.2020
Lyfjastofnun Evrópu (EMA – European Medicines Agency) er ein
þeirra þrjátíu og sjö sjálfstæðu stofnana sem starfa á vegum Evrópusambandins.
Verkefni þeirra eru afar fjölbreytt, en auk lyfjamála má nefna flugöryggismál,
umhverfismál, fæðuöryggi, fjármálastöðugleika, og dýravernd.
Rýnt í starfsemi stofnana
Nú hefur Endurskoðunarréttur ESB (European Court of Auditors - ECA) birt
skýrslu um starf stofnananna, ekki einungis hverrar um sig, heldur einnig með
heildaryfirsýn í huga. Hvernig þeim gengur að vinna að markmiðum ESB með
hagsmuni borgara landanna í fyrirrúmi, og hversu vel sambandið hefur búið að
stofnununum svo þeim sé þetta kleyft.
Niðurstaða endurskoðunar
Að venju var fjárhagsstaða stofnananna skoðuð og reyndist hún með ágætum árið
2019. Hvað varðar sýn á að ná fram markmiðum kemur fram í skýrslunni að hægt
væri að efla starfsemi stofnananna enn frekar með meiri samvinnu þeirra og
auknum sveigjanleika í starfsemi hverrar um sig. Skoða mætti samfellu í
starfseminni og aðlaga hana að þörfum hverju sinni. Einnig meta hvort stjórnarhætti
væri hægt að bæta, ekki aðeins í því skyni að sinna verkefnum hverrar stofnunar
fyrir sig, heldur einnig til að þær geti lagt enn frekar af mörkum til
stefnumótunar. Þá þyrfti einnig að nýta bolmagn stofnananna til hins ýtrasta
til að marka þeim stöðu hverri um sig sem miðstöð sérþekkingar á sínu sviði.
Fréttatilkynning
ECA
Skýrsla
ECA