Ráðstefna um þátttöku sjúklinga í þróun krabbameinslyfja
Hægt að fylgjast með beinni útsendingu á vef EMA
Lyfjastofnun Evrópu (EMA) stendur fyrir ráðstefnu um
krabbameinslyf fimmtudaginn 29. október. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 25
ára afmæli stofnunarinnar og verður á formi fjarfundar. Fjallað verður um
möguleika þess að nýta betur upplýsingar frá krabbameinssjúklingum í því skyni
að þær gætu gagnast við upplýsingasöfnun, þróun og mat á krabbameinslyfjum.
Framlag sjúklinga mikilvægt
Framlag sjúklinga í þessum málaflokki getur skipt miklu máli þar
sem þeir geta miðlað beint reynslu sinni af krabbameini og meðferðum við því.
Þannig fáist þýðingarmiklar upplýsingar sem nýtist á ýmsa vegu, öllum aðilum
til hagsbóta.Ráðstefna EMA
Þátttakendur á ráðstefnu EMA verða fulltrúar frá Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, lyfjayfirvöldum, sjúklingasamtökum, lyfjafyrirtækjum, og frá
fræðasamfélaginu.
Ráðstefnan stendur frá kl. 12:00 -15:30 að íslenskum tíma og verður hún send út
beint á
vef EMA. Að henni lokinni verður
hægt að nálgast upptöku á sömu síðu.