Síðasti dagur til að senda inn umsókn um klíníska lyfjarannsókn á árinu 2016 er 9. desember
Berist umsóknir um leyfi til klínískra lyfjarannsókna og breytinga á rannsóknaráætlun eftir 9. desember 2016 verður móttaka þeirra ekki staðfest (dagur 0) fyrr en eftir 2. janúar 2017. Lyfjastofnun hvetur umsækjendur til að miða áætlanir sínar vegna umsókna um leyfi fyrir klínískar rannsóknir við þessar dagsetningar.